
Topp-ÁLBOX færðu í öllum stærðum. Áhersla er lögð á
að
samhæfa fallegt form og notagildi. Þau eru létt en sterkbyggð, svo þú
þarft
ekki að hafa áhyggjur af því að boxið fjúki af eins og margir þekkja,
sem átt hafa plastbox. Auðvelt er að festa aukaljós og loftnet á
Álboxin.
Skut-ÁLBOX eru ákafleg þægileg í notkun vegna
staðsetningar sinnar, og taka að sjálfsögðu ekki á sig vind. Skut-ÁLBOX
er tilvalið fyrir snjóugan eða skítugan kaðalinn, ásamt öllum öðrum
smærri hlutum. Svo færðu
líka tjakk, skíða og skóflufestingar sem passa beint á boxið. Lögunar
sinnar vegna raðast einstaklega vel í boxið. Boxið byrgir ekki sýn út
um afturrúðu.
Festingar. Hægt er að fá tvennskonar festingar á
Skut-ÁLBOX. Annars
vegar festingu fyrir tjakkinn, og hinsvegar festingu fyrir skíði,
skóflu, álkarl og veiðistöngina á sumrin. Einnig er hægt að fá
slíkar festingar beint á afturhurðina eða varadekkið.
Einnig eru til Sleða-ÁLBOX, og Vagna-ÁLBOX.
Sjáið myndasíðuna til að
skoða mismunandi
útfærslur.